Lög Sjómannafélagsins Jötuns
1. KAFLI
NAFN FÉLAGSINS OG HLUTVERK
1, gr.
Nafn félagsins er Sjómannafélagið Jötunn, k.t. 670169-2439. Félagssvæði þess er Vestmannaeyjar.
Félagið er aðili að Sjómannasambandi Íslands sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands. Heimili þess og varnarþing er í Vestmannaeyjum.
2. gr.
Tilgangur félagsins er:
a) Að sameina alla starfandi sjómenn.
b) Að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo sem með því að semja urn kaup og kjör, bættan aðbúnað við vinnu og gæta þess að ekki sé gengið á rétt félagsmanna.
c) Að hafa nána og vinsamlega samvinnu við öll verkalýðsfélög innan ASÍ.
d) Að vinna að fræðslu- og menningarmálum eftir því sem aðstæður leyfa.
3. gr.
Rétt til inngöngu í félagið:
Þeir sem atvinnu stunda á sjó eða eru ráðnir í skipsrúm, svo sem hásetar, bátsmenn, netamenn, vélstjórar, matsveinar, ennfremur stýrimenn, er áður hafa verið félagsmenn og sjálfir óska þess. Eru fullra 16 ára að aldri.
Standa ekkí í óbættum sökum við félagið eða önnur stéttarfélög innan ASÍ, sem viðkomandi hefur verið í.
Eru ekki fullgildir félagsmenn í öðru félagi innan ASÍ.
Eru ekki atvinnurekendur eða verkstjórar sem eingöngu stunda verkstjórn.
Matsveinar sem eru á fiskiskipum sem gerð eru út frá Vestmannaeyjum, og eru félagsmenn í Sjómannafélaginu Jötni, skulu eiga rétt á að tilnefna einn mann í stjórn félagsins og tvo í trúnaðarráð, úr sínum hópi, á aðalfundi félagsins.
4. gr.
Ákvæði um aukafélaga:
Heimilt er að taka í félagið sem aukafélaga, unglinga innan 16 ára aldurs og aðra sem stunda vinnu í greininni á starfssvæði félagsins um stundarsakir en eiga ekki rétt til inngöngu í félagið.
Aukafélagar greiði gjald sem samsvarar fullu félagsgjaldi á meðan þeir eru á félagssvæðinu, hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum félagsins, en ekki atkvæðarétt né kjörgengi. Skyldur félagsins gagnvart aukafélögum eru hinar sömu og gagnvart aðalfélögum.
5. gr.
Sá sem óskar inngöngu í félagið skal senda skriflega inntökubeiðni til stjórnar félagsins, samþykki meirihluti mættra stjórnarmanna inntökubeiðnina, er umsækjandi orðinn löglegur félagi. Felli stjórnarfundur hins vegar inntökubeiðni, hefur umsækjandi rétt til að vísa inntökubeiðni sinni til félagsfundar. Synji félagsfundur um inngöngu í félagið getur aðilií skotið málinu til miðstjórnar ASÍ eða framkvæmdastjórnar sérsambanda sem félagið er aðili að, eftir því sem við á, en úrskurður félagsfundar gildir þar til miðstjórn eða framkvæmdastjórn hefur úrskurðað annað.
6. gr.
Úrsögn úr félaginu getur því aðeins átt sér stað að úrsegjandi sé skuldlaus við félagið. Úrsögn skal vera skrifleg og gerð grein fyrir ástæðum hennar. Hún skal afhent formanni félagsins eða skrifstofu ásamt félagsskírteini úrsegjanda.
Félagsmenn halda félagsréttindum meðan þeir gegna trúnaðarstörfum í verkalýðshreyfingunni. Enginn getur sagt sig úr félaginu eftir að atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun hefur verið auglýst, eða ákvörðun um vinnustöðvun hefur verið tekin af félaginu eða trúnaðarmannaráði, og þar til vinnustöðvuninni hefur verið aflýst. Einnig er óheimilt að segja sig úr félaginu til þess að taka upp störf félagsmanna í öðru félagi, er lagt hefur niður vinnu vegna vinnudeilu.
2. KAFLI
RÉTTINDI OG SKYLDUR FÉLAGSMANNA,
RÉTTINDAMISSIR, BROTTREKSTUR.
7. gr.
Réttindi félagsmanna eru eftirfarandi:
a) Málfrelsi, tillögu- og atkvæðisréttur á félagsfundum svo og kjörgengi. Atkvæðisréttur um kjarasamninga fer eftir nánari ákvörðun félagsfundar.
b) Réttur á styrkjum úr sjóðum félagsins, svo sem nánar er ákveðið í reglugerðum sjóðanna.
c) Réttur til að vinna eftir þeim kjörum sem samningar félagsins ákveða hverju sinni.
d) Réttur á aðstoð félagsins vegna vanefnda atvinnurekanda á samningum.
8. gr.
Skyldur félagsmanna eru:
a) Að hlýta lögum félagsins, fundarsköpum, fundarsamþykktum og samningum í öllum greinum.
b) Að greiða félagsgjöld á réttum gjalddaga.
c) Að gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið. Þó getur starfandi stjórnarmaður, sem verið hefur 5 ár eða lengur í stjórn félagsins samfellt, skorast undan stjórnarstörfum í jafnlangan tíma. Hafi félagsmaður gegnt trúnaðarstarfi fyrir félagið í 10 ár eða lengur getur hann skorast undan endurkjöri.
d) Að vinna ekki með ófélagsbundnum mönnum í greininni og er skylt að tilkynna til félagsins ef þeir verða varir við brot í þessum efnum.
9. gr.
a) Félagsgjöld eru ákveðin á aðalfundi .
b) Félagsgjöld skulu innheimt sem ákveðin % af launum, en þó er heimilt að ákveða lágmarksgjald eða hámarksgjald.
c) Félagar 60 ára og eldri sem ekki starfa á samningum félagsins en óska eftir því að vera áfram í félaginu skulu vera gjaldfríir.
d) Félagar sem ekki starfa á samningum félagsins en óska eftir því að vera áfram í félaginu skulu greiða lágmarksgjald sem ASÍ ákveður.
e) Hver sá félagsmaður sem skuldar lögboðin gjöld til félagsins fyrir 6 mánuði eða meira nýtur ekki fullra félagsréttinda, svo sem atkvæðaréttar, kjörgengis né styrkja úr sjóðum félagsins. Félagsréttindi öðlast hann ekki á ný fyrr en skuldin er að fullu greidd. Tveggja ára skuld varðar útstrikun af félagsskrá. Stjórn félagsins getur heimilað þeim sem sjúkir eru og fallið hafa af launaskrá eða stundað nám eftirgjöf á félagsgjaldi.
10. gr.
Ef félagsmaður er sakaður um brot á lögum félagsins skal málið tekið fyrir á stjórnarfundi, sem ákveður hvort veita skuli áminningu, beita fésektum eða víkja félagsmanni brott úr félaginu, með einföldum atkvæðameirihluta. Skjóta má þeim úrskurði til félagsfundar.
Hver sá maður er rækur úr félaginu í lengri eða skernmri tíma, sem að áliti félagsfundar hefur unnið gegn hagsmunum félagsins, bakað tjón eða gert því eitthvað til vansa, sem ekki er álitið að bætt verði með fé, svo og hver sem ekki hlýðir lögum þess eftir gefna áminningu í félaginu.
Úrskurði félagsfundur um áminningu, fésektir eða brottvísun félagsmanna má vísa til viðkomandi sérsambands og eða Alþýðusambandsins, en úrskurður félagsfundar gildir þar til sambandið ákveður annað.
Hafi félagsmanni verið vikið úr félaginu, á hann ekki afturkvæmt í félagið nema inntökubeiðni hans sé samþykkt á lögmætum félagsfundi.
3. KAFLI
STJÓRN OG TRÚNAÐARRÁÐ
11. gr.
Stjórn félagsins skipa 5 menn og 3 til vara.
Formaður, varaformaður, ritari, vararitari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur. Varastjórn skipa 3 menn. Kjörtímabil stjórnar skal vera 4 ár.
12. gr.
Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn allra félagsmála milli félagsfunda. Stjórnin boðar til félagsfundar sbr. 17. gr. Hún ræður starfsmenn félagsins, ákveður laun þeirra og vinnuskilyrði.
Stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á eigum félagsins, stjórn félagsins er skylt að stuðla að því að allt er varðar sögu félagsins sé sem best varðveitt. Láti félagsmaður af trúnaðarstörfum er hann gegnir fyrir félagið er honum skylt að skila af sér öllum gögnum er trúnaðarstarf hans varða.
13. gr.
Formaður félagsins kveður til stjórnarfunda og stjórnar þeim. Formanni er skylt að halda stjórnarfund óski a.m.k. 2 stjórnarmenn eftir því. Formaður undirritar gerðabækur félagsins og gætir þess að allir stjórnarmenn geri skyldu sína. Hann hefur eftirlit með starfsemi félagsins og eftirlit með því að lögum þess og samþykktum sé fylgt í öllum greinum. Varastjórnarmenn taka sæti í stjórn í forföllum aðalmanna. Varaformaður gegnir öllum störfum formanns í forföllum hans. Andist félagsmaður eða flytist búferlum sem gengt hefur trúnaðarstörfum í stjórn félagsins, skal stjórnin tilnefna staðgengil hans þar til reglulegt stjórnarkjör samkvæmt lögum félagsins fer fram á aðalfundi þess.
14. gr.
Ritari ber ábyrgð á að gerðabækur félagsins séu haldnar og færðar í þær allar fundargerðir og lagabreytingar. Hann undirritar gerðabækur félagsins ásamt formanni. Heimilt er að hljóðrita fundi félagsins.
15. gr.
Gjaldkeri hefur á hendi eftirlit með fjárreyðum og innheimtu félagsins og bókfærslu, eftir nánari fyrirmælum stjórnar.
16. gr.
Trúnaðarráð skal vera starfandi í félaginu.
Í ráðinu eiga sæti stjórn og varastjórn félagsins og 3 fullgildir félagsmenn sem kosnir eru í ráðið eftir sömu reglum og til sama tíma og stjórn félagsins. 3 varamenn skulu kosnir í trúnaðarráðið um leið og aðalmenn eru kosnir. Formaður félagsins skal vera formaður trúnaðarráðs og ritari félagsins ritari þess. Formaður kveður trúnaðarráð til fundar með þeim hætti er hann telur heppilegast. Skylt er formanni að boða til trúnaðarráðsfundar ef þriðjungur trúnaðarráðs óskar þess og tilgreinir fundarefni.
Trúnaðarráðsfundur er löglegur er meirihluti ráðsmanna mætir. Formaður getur í nafni félagsstjórnar kallað saman trúnaðarráð stjórninni til aðstoðar, um mikilsverð mál sem ber að höndum og þarfnast strax úrlausnar og ekki eru tök á að ná saman félagsfundi, og ræður úrslitum í slíkum málum einfaldur meirihluti fundar.
Hlutverk trúnaðarráðs er m.a. auk ofanritaðs.
* Að móta stefnu félagsins í mikilsverðum málum.
* Að gera tillögu um atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun.
* Að leggja mat á samninga áður en þeir eru bornir undir atkvæði.
17. gr.
Samninganefnd skal vera starfandi í félaginu. Hlutverk hennar er að annast um kjarasamningagerð fyrir hönd félagsins. Nefndin skal kjörin af trúnaðarráði og í henni eiga sæti sex menn. Formaður félagsins skal vera formaður samninganefndar nema annað sé ákveðið í lögum félagsins.
18. gr.
Kjörstjórn skal vera starfandi í félaginu. Hlutverk hennar er að annast um stjórn atkvæðagreiðslna um kjarasamninga, verkföll og allsherjaratkvæðagreiðslur skv. lögum félagsins. Stjórnin skal kjörin af aðalfundi og í henni eiga sæti tveir menn og tveir til vara. Við stjórnun atkvæðagreiðslna um kjarasamninga og verkföll skipar trúnaðarráð þriðja manninn og skal hann vera formaður stjórnarinnar. Við stjórnun allsherjaratkvæðagreiðslna um önnur atriði skv. lögum félagsins og eða lögum ASÍ.
4. KAFLI
FUNDIR OG STJÓRNARKJÖR.
19. gr.
Félagsfundir skulu haldnir þegar félagsstjórn álítur þess þörf eða minnst 30 fullgildir félagsmenn óska þess við stjórn félagsins og tilgreina fundarefni. Fundir skulu boðaðir með minnst tveggja sólarhringa fyrirvara með uppfestum auglýsingum og í dagblöðum. Þó má í sambandi við vinnudeilur og verkfallsboðanir boða fund með skemmri fyrirvara. Fundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Fundum félagsins skal stjórnað eftir almennum fundarsköpum. Ágreiningsatriði um fundarsköp úrskurðar fundarstjóri hverju sinni með rökstuddum úrskurði. Óski einstaka félagsmaður eftir skriflegri atkvæðagreiðslu á félagsfundi er fundarstjóra skylt að verða við þeirri ósk.
20. gr.
Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir lok maí ár hvert. Aðalfundur skal boðaður með dagskrá með 2 daga fyrirvara og er hann lögmætur ef löglega er til hans boðað. Reiknisár félagsins skal vera almanaksárið.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir:
1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram tiI afgreiðslu.
3. Kosning stjórnar, varastjórnar og trúnaðarmannaráðs enda fari kosning ekki fram með allsherjaratkvæðagreiðslu.
4. Kosning 2 skoðunarmanna og 1 til vara.
5. Kosning annarra stjórna og ráða sem lög og reglugerðir félagsins kveða á um.
6. Önnur mál.
21. gr.
Trúnaðarráð getur borið fram lista eða tillögu, um stjórn og trúnaðarráð sem í kjöri eru við kosningu stjórnar og trúnaðarráðs. Engin meðmæli þurfa að fylgja tillögu trúnaðarráðs. Nú vilja aðrir félagsmenn leggja fram lista við kjör stjórnar og trúnaðarráðs og þarf þá að fylgja listanum skrifleg meðmæli minnst 50 fullgildra félagsmanna.
Kjósa skal stjórn og trúnaðarráð sbr. 11. og 16. gr. á aðalfundi, nema stjórnarkjör sé ákveðið skv. 3. mgr. þessarar greinar.
Í stjórn skal sérstaklega kjósa formann, varaformann, ritara, vararitara, gjaldkera, og tvo meðstjórnendur.
Heimilt er að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarráðs og skal um tilhögun hennar fara eftir reglugerð ASÍ þar að lútandi.
5. Kafli fjármál.
22. gr.
Aðalfundur skal ákveða upphæð og greiðslumáta félagsgjalda. Reglugerð ASÍ ákveður þó lágmarksfélagsgjald verkalýðsfélags hverju sinni, sbr. 41. gr. laga ASÍ.
23. gr
Af tekjum félagsins skal greiða öll útgjöld þess, skatt til viðkomandi landssambands, skatt til ASÍ og annan kostnað, er stafar frá samþykktum félagsfundar eða stjórnar. Við meiriháttar ráðstafanir á eignum félagsins þarf samþykki félagsfundar.
24. gr.
Tveir skoðunarmenn skulu yfirfara reikninga félagsins fyrir liðið reikningsár og gera athugasemdir sínar við þá . Skoðunarmenn eru kosnir á aðalfundi. Auk athugunar hinna félagskjörnu skoðenda er stjórn félagsins skylt að láta löggiltan endurskoðanda endurskoða reikninga og fjárreiður félagsins í lok hvers reikningsárs.
25. gr.
Sjóðir félagsins skulu vera:
Félagssjóður, styrktar- og sjúkrasjóður, vínnudeilusjóður, orlofssjóður, svo og aðrir sjóðir sem stofnaðir kunna að vera. Allir sjóðir félagsins aðrir en félagssjóður skulu hafa sérstaka reglugerð samþykkta á aðalfundi. Reglugerðum sjóða má aðeins breyta á aðalfundi. Reglugerð hvers sjóðs skal tilgreina hlutverk sjóðsins, hverjar tekjur hans
skulu vera, hvernig verja skuli fé hans og hvernig honum skuli stjórnað. Félagssjóður greiðir allan kostnað af starfsemi félagsins.
Sjóðir félagsins skulu ávaxtaðir á tryggan hátt í ríkisskuldabréfum, í ríkistryggðum skuldabréfum í bönkum, í sparisjóðum og í skuldabréfum tryggðum með veði í fasteign. Tekjur félagsins skiptast milli sjóða samkvæmt ákvæðum í reglugerðum þeirra.
5. KAFLI
LAGABREYTINGAR.
26. gr.
Lögum félagsins má breyta á aðalfundi félagsins enda hafi breytinganna verið getið í fundarboði. Einnig er heimilt að breyta lögum á félagsfundi, hafi lagabreytingarnar áður verið ræddar á félagsfundi og breytinganna getið í fundarboði.
Til þess að breytingin nái fram að ganga, verður hún að vera samþykkt með 2/3 hlutum greiddra atkvæða fullgildra félagsmanna.
Breytingar á lögum koma fyrst til framkvæmda er stjórn hlutaðeigandi landsambands og miðstjórn ASÍ hefur staðfest þær.
7. KAFLI
FÉLAGSSLIT
27. gr.
Félaginu verður ekki slitið nema 2/3 allra félagsmanna samþykki það að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Verði samþykkt að leggja félagið niður, skal Alþýðusamband Íslands varðveita eignir þess þar til annað verkalýðsfélag er stofnað með sama tilgangi á félagssvæðinu. Fær það félag þá umráð eignanna, að áskildu samþykki miðstjórnar Alþýðusambandsins.
Um sameiningu félaga skal fjallað á sama hátt og lagabreytingar.
Lög félagsins voru þannig samþykkt á aðalfundi félagsins 15. maí 2004.